Danni í DDV

Þarf að létta mig um 45 kíló (úr 127 í 82). Hér ætla ég að fylgjast með hvernig gengur.

30.10.06

Gengur allt á afturfótunum

Síðasta vika er búin að vera skelfileg og ég hef þyngst töluvert. Þetta gerðist líka síðast þegar ég náði niður fyrir 100 kílóin. Ég gefst samt ekki upp og markmiðið um 97 fyrir 20. nóvember stendur! Ég er búinn að ákveða að gera líkamsæfingar heima hjá mér í hálfa klst. á dag. Magaæfingar, arbeygjur o.s.frv. þangað til ég kaupi e-ð æfingamyndband. Mér sýnast vera til milljón svoleiðis en ekkert þeirra er miðað að miðaldra körlum sem eru að reyna að létta sig.

24.10.06

Langþráðu takmarki náð

Í vigtuninni áðan var ég 99,7 kíló! Þetta er í fyrsta sinn í lengri tíma sem ég er innan við 100 kíló. Raunar man ég ekki hvenær ég var síðast undir þeim mörkum en það hefur eflaust verið á menntaskólaárunum. Þá er ég búinn að missa 27,3 kíló frá því ég byrjaði eða 60,6% af því sem ég setti mér sem markmið. Ég er að hugsa um að setja mér markmið í tilefni af þessu.
Ég byrjaði í DDV rétt fyrir 20. nóvember á síðasta ári. Sá fundur sem lendir næst þessu er 21. nóvember. Ég stefni á að vera búinn að létta mig um 30 kíló þá, þ.e. að vera undir 97 kíló.
Það slæma við þetta er það að ég lofaði sjálfum mér því strax í upphafi að ef ég næði að komast undir 100 kíló mundi ég taka upp einhvers konar líkamsrækt. Það þarf helst að vera eitthvað sem ég get stundað heima hjá mér og kostar engan pening. Ég tek næstu viku í að hugsa þetta, ákveða hvað verður fyrir valinu og hefja æfingar. Meiri fréttir um það næst.

17.10.06

Markmið?

Síðasta vika gekk mjög vel og ég léttist um 1,1 kíló. Það þýðir að ég er núna 101,2 kíló. Þar af leiðir að nú er gott að setja sér markmið. Ég byrjaði í DDV í nóvember á síðasta ári (rétt fyrir 20. nóv). Af því tilefni ætla ég að setja mér það markmið að komast niður fyrir 100 kílóin áður en nóvember 2006 gengur í garð. Ég hef nákvæmlega 14 daga! Ég er sem sagt búinn að léttast um 25,8 kíló sem er 57,3% af takmarkinu.

15.10.06

600 grömm

Í síðustu viku léttist ég um 600 grömm. Það er ekki mikið en samt ásættanlegt. Sérstaklega í ljósi þess að á sunnudeginum komu Jói mágur og Kata í heimsókn með nammi, en við Gulla höfðum keypt bakkelsi fyrir heimsóknina. Af þessu át ég eins og ég ætti lífið að leysa. Ég hef haft einn svona nammidag í viku, oft á þriðjudögum í kjölfar vigtunar og þá hef ég leyft mér að fá mér súkkalaðistykki eða sætabrauð. Fyrir síðustu viktun voru því tveir nammidagar og sá síðari í raun bara sukk. Í því ljósi hljóta 600 grömm að vera ásættanlegt. Síðan þá hefur hins vegar gengið vel og ég geri mér vonir um að hafa lést um meira en 600 grömm á þriðjudaginn. Hins vegar er ég í Reykjavík þessa stundina og Reykjavíkurferðir hafa oft reynst ansi óDDVvænar. Ég er að reyna að breyta út af því.

5.10.06

Þyngdist fyrst en léttist svo

Ég skráði ekkert síðustu tvær vikur en síðustu viku fór ég ekki í vigtun. Það afsakaði ég fyrir sjálfum mér með því að það væri svo mikið að gera í náminu en í raun vildi ég ekki fara þar sem ég hafði ekki vandað mig í mataræðinu á þeim tíma. Vikuna þar á undan var ég 105,3 og hafði því þyngst um 400 g frá síðustu viktun þar áður. Á þriðjudaginn síðasta tók ég míg því taki og vandaði mig mjög alla síðustu viku með þeim afleiðingum að ég var 102,9 núna á þriðjudaginn og léttist því um 2,4 kíló frá því ég fór síðast í vigtun. Þessi vika byrjaði ekki vel en ég hef passað mig frá því í gær og það skilar vonandi árangri í nsætu viku. Ath. að DDV-vikan er frá þriðjudegi til þriðjudags.

17.9.06

104,9

Í vigtuninni síðasta þriðjudag var ég 104,9 kíló. Það þýðir að ég léttist um 1,3 kíló í vikunni og hef misst 22,1 frá upphafi. Það sem af er þessari viku hefur mér hins vegar gengið frekar illa. Í stressi fyrir aðalfund BKNE hef ég ekki haft tíma né nennu til að hugsa um eða framkvæma almennilega matargerð. Hins vegar hef ég nartað ótæpilega í súkkulaði, kex og snakk. Ég geri því ráð fyrir að hafa þyngst eitthvað næsta þriðjudag eða í besta falli að standa í stað. Við sjáum bara til.

5.9.06

106,2

Í vigtuninni áðan var ég 106,2 kíló. Ég léttist um 1,2 í síðustu viku og hef misst 20,8 frá upphafi.