Same old, same old
Nú eru sömu tölurnar búnar að vera á vigtinni minni frá því rétt fyrir páska. Þá náði ég páskatakmarkinu og síðan eru búin að vera páskaegg og fermingarveislur. Mér sýndist ég hafa þyngst um 3 kíló í fermingarvikunni og fór ekki í vigtun eftir það. Síðasta vika var mjög góð og í vigtuninni á týsdaginn hafði aðeins þyngst um 400 grömm frá því strax eftir páska og þá í raun bara um 200 grömm frá því að ég náði páskatakmarkinu. Mér sýnast tölurnar á vigtinni heima vera á hægri en stöðugri niðurleið og bind því vonir um að þessar tölur sem ég er búinn að hafa fyrir augunum allan aprílmánuð fari nú sömu leið og snjórinn. Hið versta mál er hins vegar að síðan hans Jóa mágs liggur niðri og þess vegna er vigtarlínan flotta dottin út. Ég vona að Jói kallinn fari að koma þessu í lag bráðlega en líklega gerir hann það þó ekki fyrr en eftir prófin hjá sér.


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home